Fótbolti

Strákarnir árituðu plaköt fyrir krakkana | Myndir

Gylfi og Kolbeinn voru mjög vinsælir.
Gylfi og Kolbeinn voru mjög vinsælir. mynd/valli
Strákarnir í knattspyrnulandsliðinu glöddu unga stuðningsmenn liðsins í Kórnum í gær. Þá árituðu þeir plaköt fyrir líklega hátt í 400 krakka sem mættu á svæðið til þess að hitta landsliðsstrákana.

Loftið var lævi blandið og röðin náði út úr húsi þegar strákarnir komu loksins í hús. Þrátt fyrir fjöldann gekk allt vel fyrir sig og krakkarnir til fyrirmyndar.

Þeir gengu allir út úr húsi með bros á vör.

Valgarður Gíslason, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á svæðinu og má sjá myndir hans hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×