Fótbolti

Suker sparkaði starfsmönnum ríkissjónvarpsins úr flugvélinni

Suker var ekki svona hress fyrir flugið til Íslands.
Suker var ekki svona hress fyrir flugið til Íslands.
Ríkissjónvarp Króatíu birti á dögunum heimildarmynd um spillinguna í króatískum fótbolta. Sú mynd fór ekki vel í formann króatíska knattspyrnusambandsins, Davor Suker.

Um fátt annað hefur verið rætt í Króatíu en myndina sem birti upp ljóta mynd af króatísku knattspyrnulífi.

Myndatökumenn frá króatíska ríkissjónvarpinu áttu að fljúga með landsliðinu til Íslands en Suker hélt nú ekki.

Hann henti þeim út úr vélinni áður en haldið var af stað. Sagði þeim að koma sér til Íslands á annan hátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×