"Höfum verið að vinna í aðstæðum sem enginn annar þekkir“ Stefán Árni Pálsson skrifar 15. nóvember 2013 10:15 Kristinn Jóhannsson sést hér undir dúknum. Mynd / samsett „
Aðstæður hér eru nokkurn veginn eins og að við séum að vinna á gamaldags ritvél á meðan aðrir fá að nota nýjar PC eða MAC tölvu,“ sagði Kristinn Jóhannsson, vallarstarfsmaður Laugardalsvallarins, í samtali við ESPN. Fáir leikir hafa farið fram í nóvembermánuði á Íslandi og því aðstæður fyrir umspilsleiknum gegn Króötum í kvöld heldur erfiðar sökum veðurfars. „Undanfarnar vikur hafa verið okkur erfiðar og hafa starfsmenn vallarins unnið hér nánast allan sólahringinn.“ „Það var strax ljóst að þegar Ísland komst í umspilið að erfitt yrði fyrir okkar að halda vellinum í góðu standi fyrir leikinn. Þetta er samt bara spennandi fyrir okkur hér á vellinum og gaman að koma að þessu. Við höfum verið að takast á við vandamál hér sem ég efast um að aðrar þjóðir hafa þurft að ganga í gegnum. Grasið á Laugardalsvellinum er mjög gamalt og var það raun lagt árið 1976, því hefur ekki verið komið upp hitalögnum undir grasið.“ „Það er bara ekki hægt að flýja veðrið hér á Ísland, sérstaklega á þessum árstíma. Fjölmiðlamenn hér á Íslandi hafa í raun meira fjallað um veðrið í aðdraganda leiksins en um leikinn sjálfan. Tímabilinu lauk í september hér á Íslandi og þetta er því mjög svo óvanaleg aðstaða sem við erum í þessa dagana.“ „Völlurinn er í ágætis standi í augnablikinu en við hreinlega urðum að leigja sérbúinn dúk til að leggja yfir völlinn og verður hann yfir vellinum fram að leik.“ „Uppselt hefur verið á síðust þrjá heimaleiki Íslands sem er í raun magnað og ekki gerst í mörg ár. Það hefði aldrei orðið uppselt á leik Íslands og Kýpur fyrir einhverjum árum en við sáum það gerast í síðasta mánuði. Það breyttist allt þegar Lars Lagarback tók við íslenska liðinu og allt orðið mun faglegra í kringum liðið". Kristinn fékk mikilvæga reynslu árið 2006 þegar hann dvaldi í London og starfaði töluvert við að undirbúa Emirates-völlinn sem er í dag heimavöllur Arsenal. „Ég eignaðist marga vini á tíma mínum í England en Paul Ashcroft, yfirvallarstjóri hjá Arsenal, er einni þeirra og Paul Burgess, sem í dag starfar hjá Real Madrid kenndu mér báðir mikið. Ég get alltaf hringt í þá til að fá ráðleggingar og það hef ég gert reglulega í aðdraganda leiksins gegn Króötum.“
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Fleiri fréttir Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Sjá meira