Fótbolti

Klinsmann: Aron getur spilað með Altidore

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Jóhannsson kom inn á sem varamaður þegar að Bandaríkin og Skotland skildu jöfn í markalausum vináttulandsleik í Glasgow í gær.

Aron kom inn á í síðari hálfleik og átti tvö fín skot að marki, eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.

Jozy Altidore, leikmaður Sunderland og fyrrum samherji Arons hjá AZ Alkmaar í Hollandi, lofaði frammistöðu Arons eftir leikinn.

„Ég hef sagt fólki frá hæfileikum hans í tvö ár. Ég veit samt ekki hvaða stöðu hann spilar helst því hann getur bæði verið fremsti maður og í holunni. Hann er klókur leikmaður og skapar færi fyrir sig og aðra. Leikurinn opnaðist upp á gátt þegar hann kom inn á,“ sagði Altidore við fjölmiðla eftir leikinn.

Jürgen Klinsmann, þjálfari bandaríska landsliðsins, tók í svipaðan streng og segir líklegt að Aron og Altidore geti vel spilað saman í fremstu víglínu.

„Við höfum verið að vinna í því allt frá því að hann kom fyrst í liðið. Aron er enn nýr í hópnum og er að koma sér fyrir. Allir gera sér grein fyrir því hversu hæfileikaríkur hann er.“

„Það er því gott að sjá hversu vel honum gengur. Það er því vel mögulegt að hann spili með Jozy frá fyrstu mínútu. Hann hefur nægilega mikla trú á sjálfum sér til að leysa það hlutverk.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×