Fótbolti

Olic: Ísland er ekki topplið

Olic í harðri baráttu við Eið Smára
Olic í harðri baráttu við Eið Smára mynd/daníel
„Hvað í ósköpunum gerðu þeir í fyrri leiknum? Ég skil ekki hvaðan sjálfstraust þeirra kemur. Við getum verið ánægðir með að það sé ekki í takt við stöðuna, þeir eru ekki 3-0 yfir,“ sagði Ivica Olic framherji Króatíu nú í aðdraganda seinni umspilsleik Íslands og Króatíu fyrir heimsmeistaramótið í Brasilíu í fótbolta.

„Við getum alltaf fengið á okkur mark en ég er viss um að við getum skorað þrjú. Við vitum hversu mikilvægur þessi leikur er. Við erum ekki að mæta topp liði. Við erum að keppa við fínt lið sem er vel skipulagt.

„Ég er jákvæður og ég er viss um að við förum áfram til Brasilíu. Ísland á í vandræðum með að berjast hröðum sóknum og er með litla breidd. Við getum gert meira með okkar varamenn,“ sagði Olic sem hefur átt við meiðsli að stríða að undanförnu.

 „Ég er ekki 100%. Ég lék 45 mínútur á Íslandi og fann til eymsla. Nú keyrum við upp æfingarnar mínar og ég verð vonandi klár í 90 mínútur á þriðjudaginn,“ sagði Olic sem sendi stuðningsmönnum Króatíu skýr skilaboð.

„Það er mikið betra að leika fyrir fullum leikvangi. Það var erfitt að leika gegn Belgíu fyrir hálftómum leikvanginum, sérstaklega fyrir mig sem hef aldrei séð laust sæti í Þýskalandi. Ég á von á góðum stuðningi og góðu andrúmslofti.

„Ég á líka von á góðri frammistöðu á vellinum. Við munum skapa fimm, sex færi og við kunnum að nýta þau.

„Við ætlum að reyna að skora eins fljótt og auðið er. Við munum pressa ofarlega frá byrjun. Við munum gera betur en á Íslandi. Það jákvæða við leikinn á Íslandi var varnarleikurinn. Við erum reynslu miklir og það sáu allir í fyrri leiknum að við erum með betra lið,“ sagði Olic




Fleiri fréttir

Sjá meira


×