Fótbolti

Strákarnir lentir í Zagreb

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Frá flugvellinum í Zagreb.
Frá flugvellinum í Zagreb. Mynd/Vilhelm
Flugvél Icelandair, með leikmenn íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu innanborðs, lenti í Zagreb rétt fyrir klukkan hálf átta að staðartíma eða um 18:30 að íslenskum tíma í kvöld. Tveir sólarhringar eru í að flautað verði til leiks í síðari leiknum gegn Króötum um sæti á HM næsta sumar.

Leikmenn íslenska liðsins mættu í Leifsstöð skömmu fyrir flugtak og létu fara vel um sig á fyrsta farrými. Reyndar komust ekki allir leikmenn liðsins fyrir á afmarkaða svæðinu framan við fræga gráa tjaldið. Kristinn Jónsson, einn þeirra sem sat aftan við tjaldið, var þó sérstaklega heppinn með sessunaut en bakvörður Breiðabliks sat við hlið landsliðsþjálfarans Lars Lagerbäck.

Vel virtist fara um landsliðsþjálfarann sænska sem notaði tímann, eins og fleiri, og hallaði aftur augunum og slakaði á. Hann virtist lítið kippa sér upp við þá staðreynd að sæti hans var beint við hliðina á öðru af tveimur salernum í vélinni. Þau voru venju samkvæmt vel nýtt og reyndar sérstaklega vel nýtt í flugferðinni sem tók um fjóra og hálfa klukkustund.

Tæplega níutíu stuðningsmenn landsliðsins voru í vélinni ásamt fjölmiðlamönnum, leikmönnum og starfsfólki Knattspyrnusambandsins. Flugfreyjur- og þjónar áttu fullt í fangi með að færa stuðningsmönnum drykki á drykki ofan sem að skilaði sér í fjölda salernisferða. Þá færði starfsfólk flugfélagsins farþegum íslenska silkitrefla sem langflestir skelltu utan um hálsinn á sér með bros á vör.

Mikill meirihluti stuðningsmannanna var karlkyns en sumir voru þó með maka sína með sér. Tvær dömur sem undirritaður tók tali sögðu þó alls ekki þannig að þær væru minni stuðningsmenn en karlarnir þeirra. Þvert á móti.

Landsliðið mun dvelja á hóteli í miðborg Zagreb næstu þrjár nætur. Liðið æfir á keppnisvellinum á morgun, Maksimir-leikvanginum sem kenndur er við samnefnt hverfi í króatísku höfuðborginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×