Hreyfingin hefur verið lögð niður Samúel Karl Ólason skrifar 18. nóvember 2013 10:09 Þór Saari fyrrverandi Þingmaður Hreyfingarinnar. Mynd/GVA
Samróma var ákveðið á landsfundi Hreyfingarinnar, þann 16. Nóvember síðastliðinn, að hún yrði lögð niður í samræmi við 1. grein í kaflanum um félagsslit í samþykktum Hreyfingarinnar. Þar segir: „Þegar markmiðum Hreyfingarinnar er náð eða augljóst er að þeim verði ekki náð mun Hreyfingin hætta starfsemi og hún lögð niður.“ Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hreyfingunni sem Þór Saari fyrrverandi Þingmaður sendi frá sér. Þar segir einnig að Hreyfingin eigi rætur sínar í Borgarahreyfingunni, sem hafi verið stofnuð sem róttækt umbótaafl í íslenskum stjórnmálum. Að Hreyfingin hafi alltaf starfað í þeim anda. Þannig hafi hún alltaf hafnað styrkfé frá lögaðilum, hafði engan formann og notaðist við samhljóða ákvörðunartöku í starfi sínu. Fyrir Alþingiskosningarnar á síðasta ári beitti Hreyfingin sér fyrir stofnun Dögunar, en ekki náðist að fá mann inn á þing. Í tilkynningunni segir að sú stjórnarskrá sem samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 20. október 2012, sé raunveruleg stjórnarskrá þjóðarinnar og eina leið íslensks samfélags og stjórnmála úr því öngstræti sem Íslands sé fast í.Fréttatilkynningu Hreyfingarinnar er hægt að sjá hér fyrir neðan:„Hreyfingin á rætur sínar í Borgarahreyfingunni sem var stofnuð sem róttækt umbótaafl í íslenskum stjórnmálum í aðdraganda kosninganna árið 2009 og starfaði Hreyfingin ætíð í þeim anda. Hreyfingin hafnaði styrktarfé frá lögaðilum, hafði engan formann og notaðist við samhljóða (consensus) ákvörðunartöku í starfi sínu. Hreyfingin tók afstöðu til allra mála á þeirra eigin forsendum og hafnaði gamalgróinni hefð flokksátaka Fjórflokksins.Í aðdraganda síðustu Alþingiskosninga beitti Hreyfingin sér fyrir stofnun breiðfylkingar gegn ríkjandi stjórnmálaumhverfi og bauð fram undir merkjum Dögunar. Úrslit kosninganna eru öllum kunn og Fjórflokkurinn hefur hér enn öll völd.“Hreyfingin óskar þjóðinni velfarnaðar með þá framtíðarsýn sem hún valdi sér í kosningunum en er enn þeirrar skoðunar að eina leið íslensks samfélags og stjórnmála úr því öngstræti sem við erum föst í sé með nýju stjórnaskránni sem var samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 20. október 2012.Sú stjórnarskrá er raunveruleg stjórnarskrá íslensku þjóðarinnar, stjórnarskrá sem hún hefur sjálf samið og samþykkt. Höfnun Fjórflokksins á Alþingi á lýðræðislegri niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar er því ekkert annað en hreint og klárt valdarán pólitískrar yfirstéttar í landinu. Hreyfingin þakkar öllu samferðafólki fyrir undanfarin ár og hvetur til áframhaldandi andófs.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira