Fótbolti

Skandall ! Króatískir fjölmiðlar fjalla um drykkju landsliðsins

Vefsíða Tportal.
Vefsíða Tportal.
Króatískir fjölmiðlar hafa sýnt frétt Vísis frá því fyrr í dag, um drykkju króatíska landsliðsins, talsverðan áhuga. Átta landsliðsmenn Króata sátu að sumbli langt fram eftir nóttu í kjölfar fyrri leiks þjóðanna í umspili fyrir HM 2014. Drukku þeir yfir 70 bjóra eftir leikinn.

Skandall segir ein vefsíðan en óhætt er að segja að króatískir fjölmiðlar eigi erfitt með að trúa þessum tíðindum.

"Þó svo fjölmiðillinn segi að sagan sé sönn þá er ekki hægt að komast hjá því að þetta sé tilraun til þess að koma króatíska liðinu úr jafnvægi," segir Tportal-vefsíðan.

Síðan 24sata tekur í sama streng í sinni umfjöllun um frétt Vísis.

"Það er auðvelt að álykta að þarna sé verið að reyna að koma höggi á króatíska liðið og búa til óróa í hópnum þar sem íslenska liðið á fyrir höndum næstum vonlaust verkefni á Maksimir-vellinum," segir 24sata.

Vísir stendur að sjálfsögðu fyllilega við frétt sína frá því fyrr í dag.

Vefsíða 24sata.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×