Fótbolti

Gefur þeim ekkert eftir þó hann sé lítill og léttur

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður í knattspyrnu ásamt fjölskyldu sinni.
Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður í knattspyrnu ásamt fjölskyldu sinni. Mynd/Úr einkasafni
„Ég held bara að við vinnum þennan leik, það er bara svoleiðis,“ segir Hallfríður Vigfúsdóttir, móðir landsliðsmannsins Ara Freys Skúlasonar í viðtali við Vísi.

Ari Freyr hefur skipað stöðu vinstri bakvarðar í landsliðinu undanfarna leiki og var meðal annars valinn maður leiksins af Fréttablaðinu eftir leik Íslands og Króatíu á föstudag.

„Nú erum við [Hallfríður og Skúli, faðir Ara Freys] að bíða eftir að fá að vita hvort við komumst út til Króatíu í fyrramálið,“ segir Hallfríður.

Hún segir stemmninguna í kringum liðið um þessar mundir vera óviðjafnanlega.

„Maður er búinn að fylgja drengnum á stóra leiki erlendis en þetta sló allt út á föstudaginn, þvílík gæsahúð og stemmning í þjóðsöngnum. Þetta var mögnuð upplifun,“ segir Hallfríður.

Hún segist stolt af stráknum sínum og sammála fréttastofu um góða frammistöðu sonarins á föstudaginn.

„Hann stóð sig alveg rosalega vel og gaf þessum köllum ekkert eftir eins og maður segir, þó hann sé lítill og léttur,“ segir Hallfríður á léttu nótunum.

Hún segist hafa verið pollróleg fyrir leiknum á Laugardalsvelli, þó hún sé alla jafna með æstara móti.

„Ég hef sjaldan verið svona róleg fyrir knattspyrnuleik, ég bara vissi að þetta færi ekki illa. Nú er maður bara farinn að huga að því að safna fyrir Brasilíu,“ segir Hallfríður að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×