Fótbolti

Verður dramatík fram á síðustu mínútu

Ronaldo og Lustig rífast í fyrri leiknum.
Ronaldo og Lustig rífast í fyrri leiknum.
Það er gríðarleg spenna fyrir síðari leik Svía og Portúgala í umspili um laust sæti á HM. Portúgal mætir til leiksins með aðeins eitt mark í forskot eftir fyrri leikinn.

"Við þurfum að vera andlega og líkamlega tilbúnir í 90 mínútur því þetta verður gríðarlega erfitt verkefni," sagði Paulo Bento, landsliðsþjálfari Portúgals.

"Ég býst við dramatík fram á síðustu mínútu," sagði Erik Hamren, landsliðsþjálfari Svía.

Það var Cristiano Ronaldo sem skoraði eina mark fyrri leiksins. Hamren vill kvitta fyrir það mark snemma.

"Ég myndi gjarna vilja skora snemma og það helst tvö mörk. Við förum þó ekkert á taugum þó svo við skorum ekki í fyrri hálfleik," sagði Hamren og bætti við.

"Þetta verður erfiður leikur því Portúgal er með frábært lið. Sóknarleikurinn okkar þarf að vera talsvert betri en í fyrri leiknum ef við ætlum okkur að komast áfram."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×