Fótbolti

Sænsk útvarpsstöð vakti Ronaldo og félaga eldsnemma í morgun

Stuðningsmenn Svía leggja sitt af mörkum til þess að koma leikmönnum Portúgal úr jafnvægi fyrir leikinn mikilvæga í HM-umspilinu í kvöld.

Sænska útvarpsstöðin RIX FM sendi mann fyrir utan hótel portúgalska liðsins klukkan sjö í morgun og hann sá til þess að Ronaldo og félagar sváfu ekki lengur en það.

Hann mætti með karaoke-græjur sem voru settar á hæsta styrk. Ólíklegt verður að teljast að Ronaldo og félagar hafi sofið í gegnum lætin.

"Við vonum að einhverjir Portúgalar verði þreyttir í kvöld," stóð í texta á heimasíðu útvarpsstöðvarinnar.

Sjá má uppákomuna hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×