Fótbolti

"Ég er örugglega stressaðastur af öllum“

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Ólafur Ingi á Maksimir-vellinum nú rétt fyrir leik.
Ólafur Ingi á Maksimir-vellinum nú rétt fyrir leik. Mynd/KTD
„Það vita það allir að þetta er stærsti leikur í Íslandssögunni. Maður missir ekkert af þessu,“ segir landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason.

Blaðamaður Vísis hitti á Ólaf Inga um klukkustund fyrir leik. Ólafur Ingi er í leikbanni eftir að hafa fengið rautt spjald í fyrri leiknum í Reykjavík. Hann fékk þó leyfi frá sínu félagi í Belgíu til að fylgja strákunum til Króatíu.

„Ég met þetta vel. Menn eru tilbúnir í þetta, einbeittir og klárir. Ég hugsa að ég sé örugglega stressaðastur af öllum. Það er svona þegar maður er fyrir utan að þá byrjaður maður að hugsa og pæla of mikið í hinu og þessu. Hvað þetta er í rauninni stórt. Ef maður er að gíra sig upp í leik pælir maður ekki of mikið í því. Þá hugsar maður um leikinn,“ segir Árbæingurinn.

Aðspurður hvort hann hafi tilfinningu fyrir hvernig leikurinn fari er hann fljótur að svara.

„Ég er búinn að spá 2-0 sigri. Gylfi skorar úr föstu leikatriði og svo skorum við annað eftir skyndisókn. Ég hugsa og vona að þetta verði bara rólegar lokamínútur fyrir Íslendinga og okkur öll hérna. Ég er mjög bjartsýnn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×