Fótbolti

Lagerbäck: Okkur skorti kjarkinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Vilhelm
„Ég vil ekki segja að við vorum lamaðir en svoleiðis leit það út,“ sagði landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck í sjónvarpsviðtali við Rúv eftir ósigurinn gegn Króatíu í kvöld. Ísland tapaði 2-0 og fer því ekki á HM í Brasilíu.

Strákarnir okkar náðu sér ekki á strik í kvöld og mættu einfaldlega ofjörlum sínum á Maksimir-leikvanginum í Zagreb. „Við gáfum boltann of auðveldlega frá okkur ég reyndi að laga það í hálfleiknum. En þeir náðu einfaldlega að vinna boltann alltaf til baka.“

„Við vorum heppnir að vera bara 1-0 undir í hálfleik. Nú verðum við að læra af þessu og stíga upp,“ bætti landsliðsþjálfarinn við.

„Það er leitt að við virtumst ekki hafa kjark til að spila eins og við getum. Þeir lögðu mikið á sig þegar þeir fengu boltann en það voru vonbrigði að við skulum ekki hafa spilað boltanum frá Hannesi í stað þess að beita háum sendingum fram.“

Hann sagði að það hefði verið þögult í búningsklefa íslenska liðsins. „Það voru mikil vonbrigði að tapa þessum leik. Þeir höfðu staðið sig svo vel. Við hefðum átt að nýta okkur rauða spjaldið betur. En við verðum að læra af þessu og stíga upp. Það er mikilvægt þegar maður tapar. Nú verðum við að leggja grunn fyrir framtíðina.“

Hann segir að það hafi verið erfitt að bregðast við síðara marki Króata, sem kom snemma í síðari hálfleik. „Svona lagað gerist í fótbolta. Ég vil ekki segja að við vorum lamaðir en þannig leit það út.“

Samningur Lagerbäck við KSÍ rennur nú út en hann hefur áður sagt að hann ætli að ræða fyrst við KSÍ áður en hann lítur í kringum sig. „Ég er jákvæður og við skulum sjá til. Það hefur verið frábært að vinna með þessum strákum. Ég veit ekki hvað fólkið á Íslandi segir en hingað til hefur þetta allt saman verið jákvætt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×