Fótbolti

Jóhann Berg: Ætluðum að keyra yfir þá

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
„Þetta var alls ekki nógu gott hjá okkur. Við réðum ekki við góða pressu frá þeim í byrjun leiks,“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson eftir 2-0 tapið gegn Króatíu í kvöld.

„Þegar þeir missa mann útaf eigum við að keyra á þá en það gerðum við ekki. Það er ansi lélegt þegar við horfum til baka til leiksins.“

„Við komum út í hálfleikinn og ætluðum að keyra yfir þá og komast áfram. Að fá þetta skítamark á okkur er synd en það er lítið hægt að segja við þessu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×