Jafnréttisstofa hissa á Playboy partýi Sjallans Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 17. október 2013 12:02 „Sjóðheitar drottningar“ taka á móti gestum í Playboy partýi Sjallans um helgina. „
Vegna mikilla eftirspurna höfum við loksins ákveðið að halda hið sjóðandi heita Playboy Partý í Sjallanum þar sem GULLFALLEGAR, SJÓÐANDI heitar Playboy kanínur taka á móti gestum,“ segir í auglýsingu frá skemmtistaðnum Sjallanum á Akureyri. Ingibjörg Elíasdóttir, lögfræðingur hjá Jafnréttisstofu undrast staðurinn hyggist halda slíkt partý, aðeins mánuði eftir að hætt var við svokallað „Dirty Night“. Í viðtali við akureyrivikublad.is sagði einn af forsvarsmönnum Sjallans af því til efni að þeir hefðu misskilið hvernig samkoman „Dirty Night“ ætti að vera og um leið og þeir sáu hvað þetta var þá hefðu þeir ákveðið að bakka út. „Við sjáum að fólk er mjög á móti svona viðburðum og við höfum enga þörf fyrir að berjast á móti jafnrétti svo þegar við sáum hvert þetta var að stefna var það ekki spurning í okkar huga að hætta við þetta,“ sagði forsvarsmaðurinn. Nú aðeins mánuði síðar heldur staðurinn svokallað Playboy partý en í auglýsingunni kemur meðal annars fram að stelpur sem mæta í Playboy búning eða leðri fái glaðning en strákar sem mæta í slopp eða með slaufu fái glaðning. Þá verður „Playmate“ gella kvöldsins valin sem og „Playmate“ gæji kvöldsins. Einnig munu "sjóðheitar drottningar" taka á móti gestum. Ingibjörg segir Jafnréttisstofu hafa borist ábending um Playboy partýið í dag, en hafi ekki tekið málið til formlegrar skoðunar ennþá. Hún undrast þessa ákvörðun hjá forsvarsmönnum Sjallans, sem hafi fengið hrós frá Akureyrarbæ fyrir ári síðan fyrir að hætta við enn eitt vafasama kvöldið. Hún segist í sannleika sagt vera orðin nokkuð þreytt á þessu, ekki sé annað að sjá á auglýsingunni, en að um sömu hlutgervingu kvenna sé að ræða og vísar þá til nakinnar konu í mynd á auglýsingunni, sem og tvíræðinni atburða sem þar eru auglýstir. Sjallinn hafi brugðist snarlega við fyrir mánuði síðan en nú sé greinilega annað hljóð komið í skrokkinn.Hér má sjá facebook-auglýsingu viðburðarins.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Fleiri fréttir Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Sjá meira