Innlent

Baráttufundur kennara: Búnir að fá nóg af niðurskurði

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Hulda María Magnúsdóttir, kennari í Foldaskóla, er ein þeirra sem stendur fyrir fundinum.
Hulda María Magnúsdóttir, kennari í Foldaskóla, er ein þeirra sem stendur fyrir fundinum.
Baráttufundur kennara verður haldinn í Iðnó í kvöld. Að honum stendur hópur grunnskólakennara í Reykjavík sem er búinn að fá nóg af niðurskurði í skólakerfinu sem þau segja að bitni á skólastarfinu og þar með nemendum.

„Það er meira álag á fólki, aukin krafa um að stækka bekki og þar með hefur kennarinn minni tíma til að sinna hverjum og einum nemanda, það segir sig sjálft,“ segir Hulda María Magnúsdóttir, kennari í Foldaskóla.

Hulda María segir dæmi um allt að 29 börn í einum bekk og þótt stuðningsfulltrúi sé fenginn til aðstoðar er bara einn fagmenntaður kennari með bekkinn.

„Kennarar eru fagmenn og við erum að veita lögbundna þjónustu. Við viljum leggja okkur fram eins og við getum en okkur er gert erfitt fyrir. Ég vil meina að niðurskurðurinn síðustu ár hafi ekki bitnað jafn harkalega á nemendum og hann hefði annars getað gert því kennarar hafa tekið afleiðingarnar á sig, álagið og byrðarnar,“ segir hún.

Samkvæmt Huldu Maríu hefur niðurskurðurinn jafnframt bitnað á tækjabúnaði, forfallakennslu og möguleikum á að brjóta upp námið með námstengdum vettvangsferðum. Einnig á launum kennara.  

„Hérna í Reykjavík var yfirvinnan skorin niður sem var eina tækifærið til að drýgja tekjurnar. Barátta okkar snýst auðvitað líka um framþróun launa. Launin okkar eru ekki í samræmi við menntunarkröfur og eru rúmum 20% lægri en hjá samanburðarstéttum. Ég er með 331.000 krónur í laun eftir sex ára háskólanám og ég er meira að segja í hærri flokki vegna þess að ég er með kennsluréttindi á framhaldsskólastigi,“ segir Hulda María.

Kennarar munu ræða ástandið og hvað sé til ráða í kvöld og gert er ráð fyrir að hópurinn sendi frá sér ályktun eða yfirlýsingu að fundi loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×