Innlent

"Þetta er rothögg fyrir vísindasamfélagið“

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Niðurskurður í fjárveitingum í Rannsóknarsjóð RANNÍS er algjört rothögg fyrir vísindasamfélagið. Þetta segir einn fremsti hjarta- og lungnaskurðlæknir landsins. Hann ítrekar að öflugt rannsóknarstarf sé undirstoð framfara.

Hin árlega Vísindavaka verður haldin í kvöld í Háskólabíói og sem fyrr verður margt um að vera enda er markmiðið að vekja athygli á fjölbreytni og mikilvægi vísindastarfs í landinu. En skuggi niðurskurðar vofir yfir Vísindavökunni þetta árið.

Fimm hundruð milljóna króna fjárveiting í Rannsóknarsjóð RANNÍS, sem er hryggjarstykki í fjármögnun rannsókna á Íslandi, er nú undir spurningarmerki enda gerði Fjárfestingaráætlun síðustu ríkisstjórnar ráð fyrir tekjustofnum sem nú eru ekki til staðar.

Tómast Guðbjartsson, einn fremsti hjarta- og lungnaskurðlæknir landsins, er einn af þeim sem tekur þátt í Vísindavöku í kvöld og mun þar bjóða nýrri og fróðleiksfúsri kynslóð barna að fræðast um störf skurðlæknisins.

Hann hefur jafnframt sinnt umfangsmiklum rannsóknarstörfum með doktorsnemum. Tómas fullyrðir að niðurskurður í fjárveitingum til Rannsóknarsjóðs sé gríðarlegt áfallt fyrir háskólasamfélagið.

„Það má ekki gleyma því að rannsóknir — ekki síst grunnrannsóknir — eru forsenda framfara,“ segir Tómas. „Þetta er lífæð doktorsnámsins á Íslandi og við höfum sérstaklega verið að leggja áherslu á það að fjölga doktorum enda eru rannsóknir þeirra einna mikilvægastar.“

Vísindasamfélagið hefur lýst áhyggjum sínum af þessum niðurskurði enda er útlit fyrir að engum styrkjum verði úthlutað á næstu misserum.

„Það segir sig sjálft að þetta er algjört rothögg fyrir okkur. Til dæmis í læknisfræðinni, þar sem að við erum að skapa nýja þekkingu og bæta umönnum sjúklinga o.fl.,“ segir Tómas.

„Þetta er algjört lykilatriði. Þannig að þetta er ekki hjálp í þessum mótvindi sem höfum verið í undanfarin ár. Ég vona að stjórnvöld sjái að sér og geri líkt og Finnar gerðu í sinni kreppu, það er, að efla þessar rannsóknir og það hefur heldur betur reynst þeim vel,“ segir Tómas að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×