Innlent

"Nuk hefur það gott, það er kraftaverk að hún sé komin aftur"

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Nuk og Susanne eru sameinaðar á ný og gleðjast báðar yfir því.
Nuk og Susanne eru sameinaðar á ný og gleðjast báðar yfir því. Samsett mynd
„Nuk hefur það gott, það er kraftaverk að hún sé komin aftur og við elskum hana svo mikið,“ segir Susanne Alsing eigandi Nuk í þakkarbréfi til Íslendinga. Í bréfinu þakkar stuðninginn sem hún fékk eftir að köttur hennar, Nuk, týndist. Segist hún í raun alveg forviða á því hvernig fólk kom saman hér á landi og tók þátt í leitinni. Hún hafi fengið stuðning og að fólk hafi verið svo indælt og hjálpfúst, leitað að Nuk með vasaljósum kallandi nafn hennar. „Bílar keyrðu hægt um og leituðu að henni. Þetta var ótrúlegt. Þakka ykkur innilega fyrir.“

Þetta kemur fram í bréfinu sem hún sendi Dýrahjálp í dag. Í bréfinu tekur hún jafnframt fram að Nuk sé alls ekki vön því að vera úti svo lengi en hún var týnd í 36 klukkustundir. Alsing sagði að kötturinn hræddist auðveldlega og að henni komi ekki vel saman við önnur dýr, heldur ekki við aðra ketti.

Fundarlaunin sem Alsing hafði lofað finnanda renna annars vegar til Dýrahjálpar Íslands og hins vegar til Kattholts. Sonja Stefánsdóttir hjá Dýrahjálp Íslands segir starfsmenn félagsins ákaflega þakkláta fyrir framlagið sem nemur 70 þúsund krónum. „Mun það koma sér vel í okkar starfi.“

Í bréfinu lýsir Alsing einnig augnablikinu þegar hún fann köttinn sinn aftur: „Ég hafði gengið um og kallaði nafn hennar og allt í einu heyrði ég mjálm og lítill svartur haus birtist. Ég settist niður og talaði mjúklega til hennar. Hún kom til mín og ég tók hana upp og bar hana að flugvélinni. Ég varði nóttinni í flugvélinni með Nuk og hún borðaði, drakk og var mjög glöð. Að sjálfsögðu var ég það líka.“

Í lok bréfsins segir Alsing einfaldlega:

„Takk Ísland. Takk fyrir alla hjálpina og fyrir þann stuðning sem ég fékk.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×