Jóhann Berg: Ég verð bara að bíða eftir að glugginn opni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. september 2013 19:45 Jóhann Berg Guðmundsson fagnar jöfnunarmarkinu með félögum sínum. Mynd/Valli
Jóhann Berg Guðmundsson setti met á föstudagkvöldið með því að skora fyrstu þrennu íslensks landsliðsmanns í leik í undankeppni HM og það lá vel á kappanum þegar blaðamaður Vísis hitti hann í dag. „Ég er löngu vaknaður eftir þennan draumaleik. Það er gaman að hafa skorað þrjú mörk og að hafa getað hjálpað liðinu að ná í mikilvægt stig á útivelli á móti Sviss. Við erum í bullandi sjens núna en þurfum virkilega að vinna leikinn á móti Albaníu á þriðjudaginn sem er jafnvel mikilvægari leikur en sá á móti Sviss," sagði Jóhann Berg Guðmundsson sem var jafnvinsæll hjá fjölmiðlamönnum á blaðamannafundi í gær og hann var eftir 4-4 jafnteflið í Sviss. Menn höfðu á orði eftir þessi þrjú frábæru mörk hjá Jóhanni í Bern að einhver stórliðin í Evrópu hefðu örugglega bankað á dyrnar ef að félagsskiptaglugginn væri enn opinn. „Mörkin voru mjög flott og það segir sig alveg sjálft að þetta var mjög flott þrenna. Það er alltaf hægt að segja ef og hefði en félagsskiptaglugginn er lokaður og ég verð bara að bíða," sagði Jóhann Berg afslappaður. Hann hefur fengið stórt hlutverk hjá AZ Alkmaar og það hefur skilað sér í meira sjálfstrausti inn á vellinum. „Meiri spilatími gefur meira sjálfstraust og ég er líka búinn að vera að skora úti. Það gefur mér mikið sjálfstraust og það kannski sýndi sig á móti Sviss að ég kann þetta alveg," sagði Jóhann Berg en mun hana ekki skjóta við hvert tækifæri á móti Albaníu? „Ég er ekki að fara láta vaða hvaðan sem er því ég þarf að finna réttu færin og skjóta þaðan og svo gefa hann síðan þegar aðrir eru í betri stöðu. Það verður að finna jafnvægið," sagði Jóhann Berg.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Frakkland - Ísland | Hita upp gegn Evrópumeisturunum Handbolti Miðvarðaæði Liverpool Enski boltinn Ljósmyndari pompaði á rassinn eftir öskur Kane Körfubolti Gekk í skrokk á liðsfélaga í miðjum leik Fótbolti Martinelli og hornspyrnur hetjurnar Enski boltinn Man. United - Brighton | Tækifæri til að lýsa upp myrkrið í Manchester Enski boltinn „Elli“ gerði Alfreð og hans mönnum lífið leitt Handbolti Minntust nýlátins félaga og foreldrarnir mættu í klefann Enski boltinn Dagskráin: Arsenal og Man. Utd á ferð og NFL-veislan heldur áfram Sport Þriðji Kaninn mættur til bjargar nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Nkunku braut hjörtu Alberts og félaga Man. United - Brighton | Tækifæri til að lýsa upp myrkrið í Manchester Tómas áfram á toppnum Martinelli og hornspyrnur hetjurnar Bradley frá út tímabilið | Fer Liverpool á markaðinn? Viðsnúningur hjá Leeds sem fer áfram Miðvarðaæði Liverpool Gekk í skrokk á liðsfélaga í miðjum leik Minntust nýlátins félaga og foreldrarnir mættu í klefann Nýr stjóri Chelsea fékk óskabyrjun Salah sendi Egypta áfram í undanúrslit Hildur lenti í ótrúlegri hakkavél Draumur Villa lifir en eru dagar Franks taldir? Draumaprinsinn Benoný sendi aðdáendum kveðju Zidane gat ekki stöðvað för Nígeríu í undanúrslit Semenyo skoraði eitt af tíu og Hákon hélt hreinu Newcastle áfram eftir bráðabana og mikla dramatík Róbert með þrennu í sigri KR Varði öll þrjú vítin og Sunderland áfram Stoltur af litla bróður eftir sögulegt afrek Benoný tryggði sigurinn á ögurstundu Utandeildarlið henti meisturunum úr keppni Fram lagði Leiknismenn Glódís þarf að sjá á eftir vinkonu Dyche æfur eftir tapið Alfreð aðstoðaði Frey á Spáni Utan vallar: Dauði knattspyrnustjórans Solskjær hittir forráðamenn Man. Utd Hollywood-endir þegar Forest féll úr bikarnum Orri sá sigurmark á síðustu sekúndu Sjá meira