Ingólfur á allt gott skilið 4. mars 2013 15:30 Þráinn Árni Baldvinsson, gítarleikari hljómsveitarinnar Skálmaldar. Mynd/Stefán „
Ég kynnist honum þegar Skálmöld spilaði á G! festival árið 2011 og hann var að mynda. Hann er líka mikill víkingur og hefur lánað okkur vopn og annað í myndatökur. Hann hefur líka brugðið sér í hlutverk fyrirsætu og er á mörgum „prómó“ myndum fyrir Skálmöld. Hann óð til dæmis út í Rauðavatn í ágúst þegar við vorum að mynda fyrir nýju plötuna. Hann hikaði ekki við að vaða út í vatnið og fara á bólakaf fyrir eina mynd. Við höfum því átt góða tíma saman og við skuldum honum,“ segir Þráinn Árni Baldvinsson, gítarleikari hljómsveitarinnar Skálmaldar, um ljósmyndarann Ingólf Júlíusson. Meðlimir Skálmaldar gátu ekki komið fram á tónleikum sem haldnir voru á fimmtudag til styrktar Ingólfi og baráttu hans gegn hvítblæði. Þeir brugðu þess í stað á það ráð að hanna sérstaka boli til styrktar vini sínum og fjölskyldu hans. Mynd af Ingólfi í fullum víkingaklæðum og Skálmaldar-lógóið prýða umrædda stuttermaboli sem fást á vefsíðunni www.blekholt.is. Allur ágóði af sölu þeirra rennur óskiptur til Ingólfs. „Við vonum að sjálfsögðu að sem flestir sjái sér fært að styrkja Ingólf með hvaða hætti sem er, ef það er með bolakaupum þá er það bara frábært. Hann á allt gott skilið þessi drengur og við erum virkilega ánægðir með að geta aðstoðað hann á þennan hátt því við vorum mjög leiðir yfir að missa af styrktartónleikunum.“
Mest lesið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira