Lífið

Litla systir Britney trúlofuð

Jamie Lynn, litla systir söngkonunnar Britney Spears, er búin að trúlofa sig kærasta sínum til þriggja ára, Jamie Watson.

Jamie tilkynnti gleðifregnirnar á Twitter-síðu sinni og lét mynd af sér og sínum heittelskaða fylgja með.

Jamie er krúttmonsa.
"Getiði hvað?????" skrifaði hún við myndina. Stuttu seinna birti hún mynd af trúlofunarhringnum.

"Hann stóð sig vel," stóð við þá mynd.

Gömul mynd af systrunum.
Jamie hefur einu sinni verið trúlofuð áður, barnsföður sínum Casey Aldridge. Þau eiga fjögurra ára dótturina Maddie saman en hættu saman árið 2010.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.