Erlent

Búið að rýma moskuna í Kaíró

Stuðningsmenn Múrsí hafa mótmælt valdatöku hersins.
Stuðningsmenn Múrsí hafa mótmælt valdatöku hersins. Mynd/AFP
Egypskar öryggissveitir hafa rýmt Al-Fath moskuna í Kaíró en stuðningsmenn Bræðralags múslima höfðu lokað sig þar af. Fjöldi mótmælenda var handtekinn í kjölfarið.

Umsátrið um Al-Fath moskuna hefur staðið yfir nánast í allan dag og skiptust mótmælendur og öryggissveitir meðal annars á skotum.

Stuðningsmenn Múhameðs Múrsí, fyrrverandi forseta Egyptalands, höfðu lokað sig af í moskunni. Bræðralag múslima vill að Múrsí taki aftur við völdum og hefur mótmælt valdatöku hersins.

Bráðabirðgaforsætisráðherra Egyptalands, Hazem Al Beblawi, hefur lýst því yfir að til greina komi að banna Bræðralag múslima.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×