Meira en 200 manns ákærðir vegna blóðbaðsins í Kaíró Guðsteinn Bjarnason skrifar 10. júlí 2013 13:15 Stuðningsmenn Morsis láta engan bilbug á sér finna. Nordicphotos/AFP
Aðalsaksóknari Egyptalands hefur farið fram á að Múhamed Badie, leiðtogi Bræðralags múslima, verði handtekinn ásamt níu öðrum forystumönnum samtakanna. Þeir eru sakaðir um að hafa hvatt til ofbeldis, og það hafi leitt til átakanna í Kaíró á mánudag sem kostuðu meira en 50 manns lífið. Þá hafa meira en 200 manns verið ákærðir vegna blóðbaðsins á mánudag og sakaðir um beina aðild að átökunum. Flestir þeirra eru liðsmenn Bræðralags múslima og stuðningsmenn Múhameds Morsi forseta, sem herinn steypti af stóli í síðustu viku. Enn eru deildar meiningar um upphaf átakanna. Herinn fullyrðir að vopnaðir einstaklingar hafi byrjað að skjóta á herinn, sem var að gæta höfuðstöðva sérsveita í Kaíró. Stuðningsmenn Morsis standa hins vegar fast á því að herinn hafi átt upptökin. Múhamed Kamel Amr, utanríkisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar, sagði í viðtali við CNN í morgun að Morsi sé hafður á öruggum stað þar sem vel sé hugsað um hann. Morsi hefur verið í stofufangelsi síðan honum var steypt af stóli, en Amr segist ekki vita nákvæmlega hvar hann er hafður í haldi. Bráðabirgðastjórnin hefur boðað endurskoðun stjórnarskrárinnar fyrir lok þessa árs og bæði þing- og forsetakosningar snemma á næsta ári. Bræðralag múslima hefur mótmælt þessari ákvörðun og krefst þess að Morsi fái forsetaembættið á ný.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Sjá meira