Skorar á aðgerðasinna að fara fram á aðgang Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 5. júlí 2013 16:09 Eva Hauksdóttir fær aðgang að þeim hluta skýrslu Geirs Jóns Þórissonar sem fjallar um hana sjálfa. Hún skorar á aðra sem tóku þátt í Búsáhaldabyltingunni að sækjast eftir aðgangi að skýrslunni.
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst í gær að þeirri niðurstöðu að lögreglustjóra höfðborgarsvæðisins bæri að veita Evu Hauksdóttur aðgang að hluta skýrslu Geirs Jóns Þórissonar, fyrrverandi yfirlögregluþjóns, um Búsáhaldabyltinguna 2008 – 2009. Í desember 2012 hafði Evu verið synjað um aðgang að skýrslunni þar sem hún væri vinnugagn lögreglu og hefði að geyma viðkvæmar persónuupplýsingar. Eva hefur nú rétt á aðgangi að hlutum þess sem innihalda upplýsingar um hana sjálfa og þeim hlutum sem hefði að geyma orðréttar tilvitnanir í fjölmiðla. Í færslu sem Eva setti inn á bloggsíðu sína í gær skorar hún á aðgerðarsinna sem tóku þátt í Búsáhaldabyltingunni að sækjast eftir aðgangi að skýrslunni. „Það er óþolandi að yfirvöld komist upp með að leyna gögnum sem varða almenning og nú skora ég á ykkur öll sem áttuð persónuleg samskipti við lögreglu eða hafið aðrar ástæður til þess að gruna að ykkar sé getið sérstaklega í skýrslunni, að senda lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu tölvupóst og fara fram á aðgang að þeim hluta skýrslunnar sem varðar ykkur persónulega,“ segir á vefsíðu Evu. Í niðurstöðunni kemur fram að í skýrslunni sé á einum stað sérstök umfjöllun um samskipti lögreglumanna við Evu. Umfjöllunin er afmörkuð og vel aðgreinanlega frá öðrum hlutum skýrslunnar án þess að samhengi textans raskist. Varð það því niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu sé rétt, á grundvelli 14. og 3. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, að afhenda kæranda afrit af þessum hluta skýrslunnar, svo sem afmarkað er með nánari hætti í úrskurðarorði. Úrskurðinn er hægt að lesa í heild sinni hér.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Fleiri fréttir „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Sjá meira