Andrúmsloftið er rafmagnað og þjóðin er klofin Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 8. júlí 2013 20:05
Stuðningsmenn Bræðralags múslima og leiðtogans fyrrverandi, Múhameds Morsi, hafa mótmælt valdaráninu í Egyptalandi nær sleitulaust undanfarna daga. Stjórnarherinn steypti Morsi af stóli í síðustu viku en þá hafði Morsi, fyrsti lýðræðislega kjörni forseti landsins, aðeins setið á embættisstól í eitt ár. Bræðralag múslima hefur hvatt fylgismenn sína til uppreisnar og tugþúsundir hafa svarað því kalli. Nú þegar hafa fimmtíu látist í átökunum. „Á meðan við vorum að biðjast fyrir kom lögreglan okkur að óvörum og hóf skothríð á okkur á meðan við báðumst fyrir," sagði Mohamed Rashed íbúi í Kaíró. „Þeir skjóta beint í brjóstið, höfuðið, hálsinn, kviðinn, í þindina. Þetta eru allt banvæn skot," sagði Mohamed Zanaty, læknir. Bræðralagið hefur farið fram á það að alþjóðasamfélagið beiti sér í málinu, ellegar sé hætta á að ástandið í Egyptalandi þróist yfir í borgarastyrjöld, líkt og í Sýrlandi. Við töluðum við Sigrúnu Valsdóttur, bóksala í Kaíró, fyrir helgi, stuttu eftir að Morsi hafði verið steypt af stóli. Sigrún segir andrúmsloftið í höfuðborginni hafa versnað verulega síðustu daga. „Það er meiri ólga í lofti og andúð á milli hópa. Orðræðan og það sem er í gangi er svolítið neikvæð. Það er mikið hatur á milli hópa." Sigrún hefur búið í Egyptalandi í tólf og fylgst með þeirri ótrúlegu þróun sem orðið hefur á samfélagi Egypta síðustu ár. Hún var ekki fylgjandi mótmælunum gegn Morsi en segir það besta í stöðunni fyrir Bræðralagið að halda að sér höndum þangað til í næstu kosningum. „Það sem kemur ekki á óvart að því leytinu til er að þetta er ekki í fyrsta skipti sem herinn ræðst að mótmælendum. Það gerðist meðan þeir voru við völd eftir að Mubarak fór frá, fyrir framan ríkissjónvarpið þar sem yfir 20 manns létust og fyrir framan þingið. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þeir reyna að koma mótmælendum frá. Það eru engin auðveld svör og þetta er mjög flókið mál. Því miður er þjóðin klofin eins og stendur."
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Sjá meira