Innlent

Fjölgun nauðsynleg í raun- og tæknigreinum

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segir nauðsynlegt að fjölga námsmönnum í raun - og tæknigreinum til að bregðast við aukinni eftirspurn eftir slíkri þekkingu í samfélaginu.

Þetta kom fram í ræðu rektors við brautskráningu kandídata í Laugardalshöll í morgun. Rektor segir að vekja þurfi áhuga barna og unglinga á þessum greinum fyrr en nú tíðkast.

Fjöldi stúdenta í tölvunarfræði og fjöldi stúdenta í hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Íslands hefur rúmlega fjórfaldast á síðustu fjórum árum og fjöldi efnafræðinema þrefaldast.

Þá hefur nemendum í eðlisfræði og stærðfræði einnig fjölgað. Rektor fagnaði þessari þróun í ræðu sinni en segir að gera þurfi enn betur til að efla þessar greinar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×