Ísland við háborðið með stórveldunum Kristján Már Unnarsson skrifar 15. maí 2013 18:51
Norðurskautsráðið er eini vettvangurinn þar sem Íslendingum gefst færi á að vinna náið með helstu stórveldum heims á jafningjagrundvelli. Þetta segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, sem þó var fjarverandi fund ráðsins í Kiruna í Svíþjóð í dag, - hann kaus að sitja heima vegna yfirvofandi stjórnarskipta á Íslandi. Þoturnar sem lentu á flugvellinum í Kiruna segja sitt um þann þunga sem stórveldin leggja nú í málefni Norðurslóða en bæði Bandaríkin og Rússland sendu utanríkisráðherra sína til fundarins, þá John Kerry og Sergei Lavrov. Helsta verkefni fundarins var einmitt að ákveða hvernig aðkomu önnur stórveldi heims hefðu að Norðurskautsráðinu og varð niðurstaðan sú að ríki eins og Kína, Indland og Japan fengju áheyrnaraðild og hugsanlega Evrópusambandið líka ef það féllist á selveiðar frumbyggja. Íslendingar sitja hins vegar áfram við háborðið í hópi átta ríkja Norðurskautsráðsins. Áhrif Íslendinga birtast einnig í því að þeir eiga æðsta embættismann Norðurskautsráðsins, Magnús Jóhannesson. Það þótti einnig marka tímamót í Kiruna að samkomulag var undirritað um varnir gegn olíumengun. Fulltrúar ríkjanna átta. Össur Skarphéðinsson var fjarverandi en Hermann Örn Ingólfsson, sviðsstjóri í utanríkisráðuneytinu, fór í staðinn fyrir sendinefnd Íslands. Eitt skyggði þó á samstöðuna; Grænlendingar ákváðu að hunsa fundinn til að mótmæla því að þeir sem frumbyggjaþjóð á norðurslóðum hefðu misst beina aðkomu að ráðinu og yrðu að sækja sín mál í gegnum Dani.
Tengdar fréttir Grænlendingar hunsa fund Norðurskautsráðs Grænlendingar ætla að hunsa ráðherrafund Norðurskautsráðsins í Kiruna í Svíþjóð á morgun. Þetta gera þeir í mótmælaskyni við að Norðurskautsráðið skuli undir formennsku Svía ekki hafa tryggt Grænlendingum sömu stöðu við samningaborðið eins og Dönum. Það sé í bága við það sem áður tíðkaðist á fundum ráðsins, þegar Grænland fékk eigin fulltrúa í helstu nefndum ráðsins, við hlið fulltrúa Danmerkur, í ljósi þess að Grænland er eina ríkið á Norðurslóðum þar sem frumbyggjar eru í meirihluta íbúa. Ný heimastjórn Grænlands, undir forsæti Alequ Hammond, segist í yfirlýsingu vilja með þessari ákvörðun senda skýr skilaboð um að núverandi staða Grænlands á vettvangi Norðurskautsráðsins sé ekki ásættanleg og verði ekki þoluð. Heimastjórnin segist harma að hafa þurft að taka þessa ákvörðun en hún hafi verið nauðsynleg. Þátttaka í ráðinu sé forgangsmál hjá Grænlendingum. Þar til viðunandi lausn finnist á stöðu Grænlands verði þátttaka þess í ráðinu sett á bið. Átta ríki eiga aðild að Norðurskautsráðinu; Bandaríkin, Danmörk, Finnland, Ísland, Kanada, Noregur, Rússland og Svíþjóð. Fundinn í Kiruna sækja ráðherrar frá öllum aðildarríkjum nema Íslandi, þeirra á meðal John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands, situr ekki fundinn en í hans stað verður við ráðherraborðið Hermann Örn Ingólfsson, sviðsstjóri alþjóða- og öryggissviðs utanríkisráðuneytis. 14. maí 2013 18:52 Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Sjá meira
Grænlendingar hunsa fund Norðurskautsráðs Grænlendingar ætla að hunsa ráðherrafund Norðurskautsráðsins í Kiruna í Svíþjóð á morgun. Þetta gera þeir í mótmælaskyni við að Norðurskautsráðið skuli undir formennsku Svía ekki hafa tryggt Grænlendingum sömu stöðu við samningaborðið eins og Dönum. Það sé í bága við það sem áður tíðkaðist á fundum ráðsins, þegar Grænland fékk eigin fulltrúa í helstu nefndum ráðsins, við hlið fulltrúa Danmerkur, í ljósi þess að Grænland er eina ríkið á Norðurslóðum þar sem frumbyggjar eru í meirihluta íbúa. Ný heimastjórn Grænlands, undir forsæti Alequ Hammond, segist í yfirlýsingu vilja með þessari ákvörðun senda skýr skilaboð um að núverandi staða Grænlands á vettvangi Norðurskautsráðsins sé ekki ásættanleg og verði ekki þoluð. Heimastjórnin segist harma að hafa þurft að taka þessa ákvörðun en hún hafi verið nauðsynleg. Þátttaka í ráðinu sé forgangsmál hjá Grænlendingum. Þar til viðunandi lausn finnist á stöðu Grænlands verði þátttaka þess í ráðinu sett á bið. Átta ríki eiga aðild að Norðurskautsráðinu; Bandaríkin, Danmörk, Finnland, Ísland, Kanada, Noregur, Rússland og Svíþjóð. Fundinn í Kiruna sækja ráðherrar frá öllum aðildarríkjum nema Íslandi, þeirra á meðal John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands, situr ekki fundinn en í hans stað verður við ráðherraborðið Hermann Örn Ingólfsson, sviðsstjóri alþjóða- og öryggissviðs utanríkisráðuneytis. 14. maí 2013 18:52