Lífið

Ófyndnasti grínisti heims?

Lettneski uppistandarinn Gatis Kandis fór í áheyrnarprufu fyrir sjónvarpsþáttinn Britain's Got Talent í fyrra.

Myndband sem sýnir frammistöðu hans hefur vakið mikla athygli og var meðal annars til umfjöllunar á vef Huffington Post í gær.

Þótti Kandis sérlega ófyndinn og klaufalegur og uppskar baul frá áhorfendum milli þess sem þeir flissuðu vandræðalega.

Þrátt fyrir þetta vann Kandis hug og hjörtu dómaranna, sem hleyptu honum áfram í keppninni fyrir að vera „hlægilega ófyndinn“.

Frammistöðuna má sjá í meðfylgjandi myndbandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.