Stórskemmtilegur þáttur verður á dagskrá á Bylgjunni í kvöld þar sem strákarnir í Sálinni hans Jóns míns fara yfir ferilinn og láta ýmsar sögur flakka.
Í þættinum ræða þeir einnig um sögurnar á bakvið lögin, atburði á sínum ferli og hvað eina.
Þessi skemmtilegi þáttur hefst á slaginu 20 og verður í loftinu til 23.
Hægt er að hlusta á Bylgjuna með því að smella hér.
Sálin hans Jóns míns fer yfir ferilinn á Bylgjunni
