Hjólin byrjuð að snúast hjá Jóni 23. mars 2013 09:30 Jón Jónsson.
Íslenski tónlistarmaðurinn Jón Jónsson er kominn inn á heimasíðu Epic Records. Plötufyrirtækið er eitt undirfyrirtækja útgáfurisans Sony. Þar er hann ekki í amalegum félagsskap, en undir listamannaflipanum á síðunni má finna stórstjörnur á borð við Jennifer Lopez, Avril Lavinge og Fionu Apple.L.A Reid er núverandi framkvæmdarstjóri Epic Records, en hann heillaðist af Jóni og gerði við hann plötusamning í haust. Jón flutti fimm lög fyrir L.A. Reid, en tónleikarnir fóru fram á skrifstofu tónlistarmógúlsins í 30 hæð í Sony-byggingunni á Madison Avenue á Manhattan. Þetta sagði Jón um tónleikana í viðtali í haust: "Ég hafði verið mjög stressaður vikuna fyrir þennan fund, svaf lítið og hugsaði mikið um hvaða lög ég ætti að taka. Svo þegar kom að þessu var ég furðu rólegur. Um tíu manns voru viðstaddir og L.A. Reid lék á alls oddi. Hann bað Kristján meðal annars um að spila Bítlana á flygilinn,“ segir Jón, sem náði einungis að leika lög sín When You're Around og Kiss in the Morning áður en útgáfustjórinn frægi stoppaði hann af. "Þá fórum við bara í annað herbergi á meðan þau réðu ráðum sínum inni á skrifstofunni. Bryant var á báðum áttum hvort það boðaði gott eða ekki að L.A. skyldi stöðva okkur eftir einungis tvö lög. Svo komu allir út og þökkuðu mér fyrir flutninginn, en síðastur kom L.A. Reid og sagði orðrétt "I want to carry you on my shoulders for the world to see.“" Jón sagði svo frá því í viðtali við Fréttablaðið fyrr í mánuðinum að ferlið hefði lengri tíma en hann reiknaði með. Nú eru hjólin greinilega byrjuð að snúast.L.A Reid er stórlax í tónlistargeiranum.Jón er eins og vænta mætti í skýjunum yfir þessu og setti þessa mynd inn á Instagram fyrir helgi. Undir henni stóð. "Officially an Epic act. Feels good to be on the Epic website @Epic_Records #helloJLo #hiFiona."Jón í góðum hópi tónlistarmanna á heimasíðu Epic Records..
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Fleiri fréttir Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Sjá meira