Lífið

Youtube-stjörnur sameina krafta sína

Hulda og Ari hafa glatt marga á Youtube.
Hulda og Ari hafa glatt marga á Youtube. Mynd/Skjáskot.
Tvær þekktustu Youtube-stjörnur Íslands, ferðalangurinn Ari Jósepsson og fyrirsætan Hulda Lind Kristinsdóttir (Icebody) bjóða nú upp á símatíma þar sem fólki býðst að hringja og fá góð ráð.

Ráðleggingarnar geta verið af margvíslegum toga, en Ari segir þau auðvitað sérhæfa sig í því sem snýr að ferðalögum og fegurð.

Símanúmerið er 445-2163 og ætla þau Ari og Hulda að sitja fyrir svörum til klukkan 22, og birta svo hljóðupptökur úr símatímanum á Youtube. En ekki hvað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.