Ef ég hefði ekki farið í tékk þá hefði ég hugsanlega komist að þessu allt of seint Ellý Ármanns skrifar 15. mars 2013 21:30 Jónas Hallgrímsson tók þessa mynd af Guðrúnu í apríl árið 2011 fyrir Íslandsmótið í fitness.
Guðrún Hólmfríður Ólafsdóttir, 26 ára, hefur starfað hjá World Class frá árinu 2007. Hún stundar nú íþróttafræði í Háskólanum í Reykjavík. Guðrún féllst á að ræða við okkur um veikindi sín því hún vill koma þeim skilaboðum til ungra kvenna að fara í krabbameinsskoðun og láta fylgjast með sér.Allt of margar fara ekki í krabbameinsskoðun "Það eru alltof margar stelpur í kringum mig sem hafa aldrei farið í krabbameinsskoðun en ég greindist með frumubreytingar í fyrsta sinn sem ég fór og nú seinast var ég komin með leghálskrabbamein. Konur virðast almennt ekki vera mjög meðvitaðar um hvað þetta reglubundna tékk getur skipt sköpum."Fékk þær fréttir að þetta var orðið að leghálskrabbameiniHvernig komst þú að því að þú ert með krabbamein? "Í haust fór ég í reglubundið eftirlit hjá kvensjúkdómalækni. Það fundust hjá mér frumubreytingar og ég fór í keiluskurð í desember. Í janúar fæ ég þær fréttir að þetta var orðið að leghálskrabbameini. Sem betur fer náðu þeir að fjarlægja allt meinið strax en þar sem þetta var komið á þetta stig þarf að fjarlægja leghálsinn og einhverja eitla þar í kring. Eitlarnir verða svo skoðaðir betur en ekki er reiknað með því að ég þurfi á áframhaldandi meðferð eftir þetta. Ef þetta hefði verið orðið aðeins stærra hefði þurft að taka allt legið."Engar aukaverkanir "Ég fann ekki fyrir neinu og ef ég hefði ekki farið í tékk þá hefði ég hugsanlega komist að þessu allt of seint," bætir hún við.Fjölskyldan styður Guðrúnu Áttu góða að sem hjálpa þér í gegnum veikindin? "Ég á góða fjölskyldu sem stendur með mér í þessu öllu saman sem er ómetanlegt. "Á leiðinni til Noregs í aðgerð Hvar fer aðgerðin fram og hvenær? "Aðgerðin verður framkvæmd í Osló. Vonandi er það endapunkturinn á þessu ferli hjá mér en það er ekki er reiknað með að ég þurfi á áframhaldandi meðferð eftir það."Hvetur allar konur að panta sér tíma "Eftir að ég komst að þessu hef ég orðið vör við það hversu margar stúlkur og konur hunsa það verkefni að fara í tékk. Mér finnst það sorglegt því ef þetta kemst upp nógu snemma eru batarlíkurnar mjög góðar, Eftir því sem líður lengra þeim mun minni eru líkurnar á bata. Það er hundleiðinlegt að fara í þessa skoðun en svo algjörlega þess virði. Ég hvet því allar konur til þess að panta sér tíma á leitarstöðinni eða hjá kvensjúkdómalækni í skoðun."Batahorfur góðar Hverjar eru batahorfurnar hjá þér? "Batahorfur eru góðar þegar þetta finnst snemma í ferlinu sem var tilfellið hjá mér," segir Guðrún.http://www.krabb.is/leitarstod
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Fleiri fréttir Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Sjá meira