Lífið

Missti fóstur og dó næstum því

Leikkonan Gwyneth Paltrow opnar sig í tímaritinu You. Gwyneth er gift rokkaranum Chris Martin og segir það hafa reynst þeim afar erfitt þegar Gwyneth missti fóstur fyrir nokkru síðan.

Gwyneth og Martin eiga dótturina Moses, átta ára, og soninn Moses, sex ára, saman og vill leikkonan eignast það þriðja.

Gwyneth með börnin sín tvö.
"Börnin mín eru alltaf að biðja mig um að eignast barn. Maður veit aldrei, það gæti farið svo. Mig langar í þriðja barnið. Ég er að hugsa um það. En ég varð fyrir svo hrikalegri lífsreynslu þegar ég var ólétt af mínu þriðja barni. Ég missti fóstur og dó næstum því. Ég veit ekki hvort við ættum að reyna aftur," segir Gwyneth í hjartnæmu viðtali.

Krúttin Chris og Gwyneth.
Hreinskilin.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.