Matinn á að gera frá grunni 18. mars 2013 11:30 Gunnar Már Kamban einkaþjálfari.
Það er að koma betur og betur í ljós að við vitum ekki hvað við erum að setja ofan í okkur. Þetta mataræði gengur út á að gera hlutina frá grunni," segir einkaþjálfarinn Gunnar Már Kamban, en hann er höfundur bókarinnar „Lág kolvetna lífsstíllinn" sem kom í verslanir á dögunum. Með bókinni vill Gunnar hjálpa fólki að grennast og líða betur. Hann bendir á að í dag séu 24% Íslendinga þjökuð af offitu og að sex af hverjum tíu séu of þungir. „Það sem við viljum því gera er að takmarka þau kolvetni sem valda sykurþörf, aukinni matarlöngun og orkusveiflum. Uppistaðan í matnum á því að vera fitur og prótein," segir Gunnar. Hann bendir á að ófremdarástand hafi skapast á mjög skömmum tíma í sambandi við ofþyngd, þrátt fyrir gríðarlegt framboð af hollum matsölustöðum. „Líkaminn flokkar ekkert endilega matinn eftir því hvort hann er hollur að óhollur. Hann tekur bara inn það sem við látum ofan í okkur og vinnur úr því. Ef viðbrögðin verða þau að líkaminn dælir inn insúlíni í blóðið er ekkert hægt að léttast," segir Gunnar. Í bókinni er að finna þriggja vikna matseðil þar sem búið er að skipta deginum upp í morgunverð, hádegisverð og kvöldverð, en allt á að búa til frá grunni. „Þetta er svolítið eins og í gamla daga þegar enginn keypti unna eða tilbúna vöru. Dæmin hafa nú sýnt það upp á síðkastið að við vitum ekki mikið hvað við erum að borða," segir Gunnar, og bendir á hrossakjötshneykslið. Hann segir að með þessu mataræði eigi fólk auðveldara með að léttast þar sem ekki þurfi að borða á 2-3 tíma fresti né þurfi að telja hitaeiningarnar ofan í sig. „Þetta snýst bara um að borða góðan mat eftir eigin tilfinningu."Uppskrift úr bókinni: Pizza með blómkálsbotni Botninn 1 haus ferskt blómkál (soðið og maukað) 2 dl rifinn ostur 2 egg 2 pressaðir hvítlauksgeirar 2 tsk. salt 2 msk. möndlumjólk 1 msk. ólífuolía Álegg Eldaður kjúklingur, niðurrifinn Grænt pestó Fetaostur Rauðlaukur Salthnetur Rifinn ostur Blandaðu öllum hráefnum í botninn saman. Deigið er breitt út á smjörpappír á bökunarplötu. Baka í 15-20 mínútur á 180°C. Taktu botninn út og bættu álegginu ofan á. Baka svo í 15-20 mínútur.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Fleiri fréttir Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Sjá meira