Lífið

Stjörnubarn á hraðskreiðum bíl

Stórleikarinn Tom Cruise hefur alltaf verið hrifinn af hraðskreiðum bílum og svo virðist sem hann hafi smitað son sinn Connor af bílabakteríunni.

Connor mætti í partí í Los Angeles fyrir stuttu á gulri Lamborghini-bifreið sem hefur eflaust kostað skildinginn.

Ætli pabbi hafi borgað fyrir bílinn?
Partíið var til að kynna nýja línu af úrum frá Karl Lagerfeld og þó þetta átján ára stjörnubarn hafi mætt á staðinn með stæl var hann frekar afslappaður í klæðaburði. Hann klæddist gallabuxum, stuttermabol, leðurjakka og strigaskóm og skemmti sér konunglega með vini sínum.

Hress á kantinum.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.