Lífið

Fimm leiðir að léttara lífi

"Það er ekkert bannað sem heilbrigð skynsemi segir þér að sé í lagi, meira að segja súkkulaði."
"Það er ekkert bannað sem heilbrigð skynsemi segir þér að sé í lagi, meira að segja súkkulaði."
Það úir og grúir af fréttum um heilsu í heiminum í dag og enginn veit hverju á að trúa.

Fannar Karvel íþróttafræðingur lumar hér á fimm einföldum ráðum að hollu mataræði og léttara lífi.

Glanstímarit sýna ótrúlegar umbreytingar á fólki sem hélt sig við grænmetisfæði, hráfæði, steinaldarmataræði o.s.frv. Þessum mataræðislögmálum fylgja svo alltaf ákveðin boð og bönn sem verður að fylgja samkvæmt ýtrustu túlkun laganna.

Hlutirnir eru mun einfaldari en þetta og það er nokkuð öruggt að sá sem ætlar að selja þér „nýjasta ríkisleyndarmálið fyrir fitubrennslu" er að selja þér köttinn í sekknum og ætlar bara að græða á þér.



Flest „leyndarmálin" banna líka ákveðna hluti; Atkins bannaði kolvetni, grænmetisætur banna kjöt, steinaldarmataræðið bannar unnar matvörur o.s.frv.

Flest hafa eitthvað til síns máls en staðreyndirnar eru þannig að okkur gengur betur að fá jákvæða styrkingu og leiðbeiningu heldur en bönn og skammir.

Borðaðu þessa fimm hluti á hverjum degi ásamt tveimur máltíðum og sjáðu hvað gerist.

1. Tveir lítrar vatn

2. Lófafylli af hnetum

3. Þrír ávextir

4. Þrír skammtar grænmeti

5. Gamla góða harðfiskinn (ekki missa sig í smjörið)

Það er ekkert bannað sem heilbrigð skynsemi segir þér að sé í lagi, meira að segja súkkulaði!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.