Lífið

Móðir ársins

Kryddpían Mel C var valin stjörnumóðir ársins af verslunarkeðjunni Tesco í gærkvöldi en verðlaunaathöfnin fór fram á Savoy-hótelinu í London.

Mel á fjögurra ára dótturina Scarlet en ákvað að fagna þessum áfanga með sinni eigin móður, Joan O'Neill. Afskaplega viðeigandi í ljósi aðstæðna.

Takið eftir skónum hennar Mel C. Einstaklega smart.
Fjölmargar frægar mæður lögðu leið sína á viðburðinn. Þar á meðal söngkonan Michelle Heaton sem hermdi eftir kryddpíunni og tók einnig móður sína með.

Michelle Heaton ásamt móður sinni.
Mel C er þekktust fyrir að vera íþróttakryddið í stúlknasveitinni Spice Girls.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.