Lífið

Stílhreint og sportlegt

Franska tískuhúsið Chloé sýndi haust – og vetrarlínu sína á tískuvikunni í París í gær. Línan var afskaplega stílhrein og falleg ásamt því sem litirnir voru mjúkir og klæðilegir. Tískuhúsið er þekkt fyrir kvenleg snið og var sýningin í gær engin untantekning þar á, en yfirhönnuðurinn Clare Waight Keller hannaði línuna með það í huga að hún hentaði í fataskáp nútímakvenna, hvort sem fatnaðurinn væri hugsaður fyrir skóla eða vinnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.