Lífið

Andlát pabba breytti öllu

Hjartaknúsarinn Bradley Cooper er í mjög opinskáu viðtali við tímaritið GQ sem kemur út 7. mars. Þar talar hann meðal annars um andlát föður síns.

"Dauðinn varð mjög raunverulegur. Og mjög áþreifanlegur. Því faðir minn, sem hafði verið hluti af lífi mínu í 36 ár, var farinn. Ég horfði á hann deyja. Ég var við rúmið hans, andaði með honum og svo sá ég hann draga síðasta andann og hann var farinn. Þetta andartak breytti öllu," segir Bradley.

Tilfinninganæmur Bradley.
Bradley, sem fór á kostum í kvikmyndinni Silver Linings Playbook, er þakklátur fyrir þessa stund með föður sínum.

Átti stórleik í Silver Linings Playbook á móti Jennifer Lawrence.
"Faðir minn gaf mér tvær gjafir – að eignast mig og að deyja með mig sér við hlið. Ég var einu sinni mjög óstyrkur ef ég átti að tala opinberlega en nú verð ég ekki stressaður yfir neinu. Ég get ekki stjórnað öllu. Ég horfði á föður minn deyja og ég gerði mér grein fyrir því að við eigum öll eftir að deyja á þennan hátt."

Bradley, fyrir miðju, í The Hangover.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.