Lífið

Borgarleikhúsið bíður eftir leyfi frá Disney

Guðjón Davíð og Jóhanna Vigdís, Bert og Mary, í einu af mörgum skemmtilegum og krefjandi dansatriðum sýningarinnar.
Guðjón Davíð og Jóhanna Vigdís, Bert og Mary, í einu af mörgum skemmtilegum og krefjandi dansatriðum sýningarinnar.
Borgarleikhúsið bíður eftir grænu ljósi frá Disney til þess að fá að gefa út tónlistina úr Mary Poppins. Lögin úr Mary Poppins verða gefin út í flutningi leikara og söngvara Borgarleikhússins um leið og leyfi hefur fengist frá rétthöfum að útgáfu tónlistarinnar sem eru Disney og leikhúsframleiðandinn Cameron Mackingtosh. Að sögn Magnúsar Geir Þórðarsonar leikhússtjóra hafa margir leikhúsgestir spurt eftir lögunum úr sýningunni og vonandi fáist leyfin innan tíðar. "Við höfum fullan hug á útgáfunni enda er tónlistin einstaklega grípandi og skemmtileg," segir Magnús Geir. Sýningin hefur sem kunnugt er slegið í gegn, allar 58 sýningar leikársins eru komnar í sölu og býst Magnús Geir við því að uppselt verði á þær allar innan skammrar tíðar. Þegar hafa selst hátt í 30 þúsund miðar á sýninguna sem verður sýnd fram í júní en hún er sú fjölmennasta sem sett hefur verið upp í Borgarleikhúsinu.

Tengdar fréttir

All-þokkalega pottþétt!

Stórfengleg upplifun þar sem öllum töfrum leikhússins er beitt. Ævintýraleg uppfærsla af Mary Poppins.

Skapaði bara meiri stemningu

„Við bara stoppuðum og spóluðum til baka smástund og héldum svo áfram þar sem frá var horfið,“ segir Jóhanna Vigdís Arnardóttir, sem leikur Mary Poppins, um viðbrögð leikaranna við því þegar tölva fraus á frumsýningu söngleiksins í þann mund sem flugatriði Guðjóns Davíðs Karlssonar í hlutverki Berts átti að hefjast og stöðva þurfti sýninguna um stund. „Við sem vorum á sviðinu vissum auðvitað ekkert hvað var að gerast, en þegar við komumst að því vissum við að þetta var bara tímaspursmál og við gætum fljótlega haldið áfram.“

Frægir á frumsýningu Mary Poppins

Frumsýningargestir fögnuðu ákaft í lok frumsýningar söngleiksins Mary Poppins í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi en gestir voru sammála um að sýningin hafi verið frábær - töfrum líkust. Eins og sjá má á myndunum mættu fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar á sýninguna sem Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir.

Baksviðs á Mary Poppins

Meðfylgjandi myndir voru teknar baksviðs eftir frumsýnignu söngleiksins Mary Poppins í Borgarleikhúsinu um helgina. Þá má einnig sjá myndir í gleðskapnum sem leikhúsfólk og aðstandendur héldu eftir sýningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.