Lífið

Hvernig væri að baka skonsurnar hennar Siggu Lund í óveðrinu?

Ellý Ármanns skrifar
Sigga Lund sem heldur úti vefnum Siggalund.is setti þessa girnilegu mynd af skonsum á Instagram rétt í þessu. Við höfðum strax samband við Siggu og fengum uppskriftina hjá henni enda tilvalið að baka í þessu veðri.

"Uppskriftin er einföld," sagði Sigga áður en hún gaf okkur upp hvaða hráefni hún notar í skonsurnar.

"Skonsugerð í vonda veðrinu ... mmmm #baking #skonsur," skrifar Sigga Lund á Instagram.
Skonsur að hætti Siggu Lund

2 bollar hveiti

2 tsk. lyfitduft

2 egg

1/2 bolli sykur

1 og 1/2 bolli mjólk

"Ég blanda sykri, eggjum, lyftdufti og mjólk saman og hræri og bæti svo hveitinu út í smátt og smátt. Á mínu heimili borðum við skonsurnar þegar þær eru heitar og nýbakaðar með smjöri, osti og sultu."

Siggalund.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.