Lífið

Hún varð ung mamma og hann fæddist gömul sál

Þau eiga það sameiginlegt að vera miklir golfáhugamenn og vilja bæði stjórna stærsta stéttarfélagi landsins.   Ólafía B. Rafnsdóttir og Stefán Einar Stefánsson munu á næstu dögum berjast um hvort þeirra komi til með að gegna starfi formanns í VR.

Í Íslandi í dag í kvöld verður rætt við formannsframbjóðendurna og rætt við vini þeirra. Ólafía varð móðir einungis fjórtán ára og Stefán Einar er sagður hafa fæðst sem gömul sál en hann er einungis þrítugur og hefur verið formaður VR síðan 2011.

Ólafía hefur stýrt kosningabaráttum Ólafs Ragnars Grímssonar, Árna Páls Árnasonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Hún segir í þætti kvöldsins að það sé gjörólíkt vera nú sjálf í kosningaslag.

Ísland í dag hefst klukkan 18:55 og er í opinni dagskrá á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.