Lífið

Opnar sölusíðu fyrir íslenskt handverk

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Dögg Hugosdóttir – Callahan opnaði vefinn ljonshjarta.com fyrir skömmu. Hún segir vefinn vera bæði markað og samfélag fyrir íslenskt handverk og listir, þar sem allir geta komið sinni söluvöru á framfæri á einfaldan hátt. Síðan er í svipuðum dúr og erlendar sölusíður á borð við Etsy og Ebay.

Síðustu ár hefur verið auðvelt fyrir handverksfólk að selja hönnun sína og koma sér á framfæri á erlendum sölusíðum. Aftur á móti getur verið mikil fyrirhöfn og kostnaðarsamt að standa í póstflutningum og greiðslum í gegnum Netið. „Ég vildi stuðla að því að gera þetta auðveldara fyrir Íslendinga. Hvort sem fólk heklar, málar eða semur tónlist getur það komið sínu verki í sölu á síðunni", segir Dögg. Hún segir það vera sáraeinfalt að skrá sig á ljonshjarta.com og hvetur sem flesta til að taka þátt. „Við erum mjög spennt fyrir þessu og það er margt spennandi á döfinni. Við ætlum að halda svokallaða sprettmarkaði eða pop-up, handverksnámskeið af ýmsu tagi og byggja þannig upp skemmtilegt samfélag sem fólk getur tekið þátt í hvar sem er það býr á landinu".

Kisunælur fyrir kraga lífga upp á hvaða kjól eða skyrtu sem er.
Dögg Hugosdóttir-Callahan.
Þessir fallegu origami-óróar eru til sölu á ljonshjarta.com.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.