Lífið

Rihanna sýnir bossann

Aðdáendur Rihönnu vita að hún er ekki hrædd við að taka myndir af sér í alls kyns aðstæðum og birta þær á netinu. Hún gerði einmitt það í vikunni en myndin var aðeins djarfari en vanalega.

Rihanna ákvað að taka mynd af nýjum sérsmíðuðum Prada-stígvélum sem hún var að fá sér og klæddist aðeins hvítum þveng við. Ekki feimin, hún Rihanna, sem sýndi bossann hverjum sem vildi sjá hann.


Myndin fræga.
"Þarf að tipla á tánum á marmaragólfinu!!! Geðveik sérsmíðuð Prada-stígvél! Miuccia þú rúlar!!! Takk," skrifaði Rihanna á Twitter-síðu sína með myndinni.

Gullfalleg á Grammy.
Með kærastanum umdeilda, Chris Brown.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.