Lífið

Skartaðu aðeins uppáhaldsbókunum þínum

Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar
Flokkaðu bækurnar eftir litum. Ókosturinn við það er hins vegar sá að bókaflokkarnir ruglast. Strengdu upp borða á vegginn.
Flokkaðu bækurnar eftir litum. Ókosturinn við það er hins vegar sá að bókaflokkarnir ruglast. Strengdu upp borða á vegginn.
Fólk á það til að safna bókum og blöðum með árunum en lendir svo gjarnan í vandræðum með að koma þeim fallega fyrir á heimilinu.

Helstu mistök fólks eru þau að troða of miklu í bókahillurnar og þá skapast óreiða á heimilinu og það kemur illa fyrir sjónir.

Skemmtileg lausn - Notaðu herðatré til að geyma nýjustu tímaritin þín, það er svo hægt að breyta til þegar næsta blað kemur.

Allar uppáhalds á einum stað - Raðaðu öllum uppáhaldsbókunum þínum í stofuna og settu með því persónulegan stíl á rýmið.

Skreyttu borðið - Bækur geta verið hið fallegasta borðskraut.

Flott tískublöð eru á við mublur - Einfalt, látlaust og stílhreint.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.