Lífið

Franskt og fallegt

Þórhildur Þorkelsdótir skrifar
Miuccia Prada sýndi haust- og vetrarlínu Miu Miu á síðasta degi tískuvikunnar í París á miðvikudaginn var. Yfirhafnir voru í algjöru aðalhlutverki í þetta sinn, en fyrirsæturnar klæddust fallega sniðnum jökkum yfir frekar einfalda kjóla. Prada segist hafa verið undir frönskum áhrifum og vildi túlka franska kvenleikann í allri sinni dýrð á sýningarpallinum. Þessi innblástur endurspeglaðist íf fallegum doppóttum hálsklútum sem fyrirsæturnar báru, en röndóttar sokkabuxur voru líka áberandi. Klassísk og heilsteypt lína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.