Eftir að ég prófaði dropana get ég ekki verið án þeirra Ellý Ármanns skrifar 21. febrúar 2013 09:15
Sjöfn Þórðardóttir sjálfstætt starfandi viðburðarstjórnandi og grunnskólakennari upplýsir okkur hvaða heilsuvörur hafa reynst henni vel. Sjöfn er ein af fjölmörgum konum sem eru með viðkvæma húð og geta því ekki notað hvað sem er.D-Vítamín, Lýsi og sólhatt "Ég byrja daginn ávallt á góðum og hollum morgunverði og það er tvennt sem ég passa að taka í hvert sinn með morgumatnum- D-vítamín og lýsi. En D-vítamín er m.a. nauðsynleg fyrir upptöku kalks og eðlilega uppbyggingu beinagrindarinnar. D-vítamínið tek ég reyndar einungis inn yfir vetrartímann meðan íslenska skammdegið liggur yfir okkur. Einnig er ég dugleg að taka inn sólhatt í fljótandi formi til að byggja upp öflugra ofnæmiskerfi og það hefur gefið mér góða raun." "Lýsið er tekið inn allan ársins hring og án þess ætti enginn að vera. Önnur vítamín tek ég ekki en lykillinn að góðri heilsu er að borða fjölbreyta fæðu úr öllum fæðiflokkunum og það geri ég."EGF húðdroparnir "Til að viðhalda heilbrigðri og fallegri húð er mikilvægt að nota góðar heilusvörur og Weledavörurnar eru mínar uppáhalds ásamt EGF húðdropunum og dagkreminu. Ég er með mjög viðkvæma húð og þarf því að vanda valið og oft hefur reynst mér erfitt að finna réttu vörurnar en þessar hafa hitt í mark." "Eftir að ég prófaði EGF dropana get ég ekki verið án þeirra. Ég ber þá reglulega á andlit, augnsvæði og háls á kvöldin eftir hreinsun húðarinnar. Ég finn að þeir eru endurnærandi og græðandi dropar og gefa húðinni fallegri áferð og jafnari lit. Einnig eyða þeir þurrkblettum sem gjarnan koma yfir vetrartímann þegar kalt er í veðri."Weleda húðhreinsir "Ég get ekki verið án Cleanser & Toner en það er vara sem sameinar hreinsimjólkina og andlitsvatnið og hentar mér mjög vel. Djúphreinsun húðarinnar er nauðsynlegur grunnur góðrar húðumhirðu, óháð aldri.Möndluolía "Möndluolían (Almond Soothing) er ein besta vara sem ég hef fundið til að fjarlæga augnfarða og mýkja húðina í leiðinni. Þessi olía er mild og róandi andlitsolía fyrir viðkvæma húð og hentar mér vel. Ég slæ tvær flugur í einu höggi með því að nota möndluolíuna. Ég ber hana gjarnan á hreina húðina fyrir svefn á kvöldin. Mjög auðvelt er að nota hana til að fjarlægja augnfarða með því að setja nokkra dropa á bómull og strjúka varlega kringum augun."Arnica nuddolía "Þar sem ég stunda reglulega líkamsrækt og fer í Hot Yoga nota ég ávallt heilsuolíur og þær gera húð mína silkimjúka samhliða æfingunum. Arnica nuddolían frá Weleda er mín uppáhalds olía og án hennar gæti ég alls ekki verið. Ég ber hana alltaf á mig fyrir Hot Yoga tíma og eftir sund, það er að segja bæði fyrir og eftir líkamlega áreynslu. Olían hitar, dregur úr bólgum, eykur blóðstreymið og verndar vöðvana meðan á áreynslu stendur og eykur hreyfigetuna. Eftir æfingarnar haldast vöðvarnir heitir og kólna ekki hratt niður og spennast. Dásamleg tilfinning og árangurinn sést." "Arnica nuddolían heldur húðinni heilbrigðri og teygjanlegri og styður við náttúrulega starfsemi hennar. Hún inniheldur sólblómaolíu, ólívuolíu, arniku og birki. Hreinar ilmkjarnaolíur úr landvender og rósmarín gefa styrkjandi og örvandi ilm sem er einstaklega góð blanda."Cellulite-olía "Weleda vörurnar eru framleiddar úr lífrænt ræktuðum hráefnum og það er þess vegna sem ég heillast svo af þessum vörum sem og árangurinn sem ég hef séð eftir notkun þeirra." "Á nokkurra mánaða fresti nota ég birki celluliteolíuna frá Weleda og þegar ég geri það þá nota ég hana samfellt í fjórar vikur eða svo. Þessi olía er snilld, hún eykur teygjanleika húðarinnar og gerir hana sléttari. Hún er sumarolían mín þar sem ég fer reglulega í sund yfir sumartímann og virkni olíunnar er best ef hún er borin á húðina með hún er rök." "Uppáhalds sturtusápan mín er Citrus Creamy Body Wash frá Weleda eða eins við segjum á íslensku Sítrus sápan. Hún er einstaklega frískandi í morgunsárið og gefur manni aukin kraft. Örvar bæði líkama og sál."Moroccan hárolía "Ég vel aðeins það besta fyrir hárið og kaupa ávallt góðar hársnyrtivörur. Moroccanoil Treatment er olía sem ég gæti alls ekki án verið. Eftir hvern hárþvott nota ég þessa olíu í hárið og hárið glansar af heilbrigði. TIGI hársnyrtivörurnar hafa reynst minni hárgerð afar vel og án þeirra gæti heldur ekki verið."Kókosolía "Ef allar olíur og húðkrem eru að þrotum komnar þá er það kókósolían hennar Sollu, hún hentar afar vel á sumrin og kemur sterk inn með hækkandi sól til að mýkja húðina. Kókosolía er eitt af því sem er ávallt til á mínu heimili."Sjöfn Þórðardóttir.
Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Halldór Haraldsson er látinn Tónlist Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Sjá meira