Hannar og saumar knúsuklúta og slefsmekki fyrir sniðuga stubba Íris Hauksdóttir skrifar 21. febrúar 2013 15:07 Dagbjört Elsa með hönnun sína.
Dagbjört Elsa Yngvadóttir situr svo sannarlega ekki auðum höndum því undanfarin ár hefur hún hannað og saumað dásamlega smekki, slefklúta, stuttbuxur og snuddubönd fyrir smáfólkið við miklar vinsældir. „Þetta byrjaði allt á smekkjunum, en þegar dóttir mín fæddist fann ég hvergi smekki handa henni sem virkuðu nógu vel. Þeir voru ýmist of litlir eða láku svo ég ákvað að prófa mig áfram sjálf. Smekkirnir mínir komu svo vel út að ég fór að gera fleiri og gefa fólkinu í kringum mig. Þeir slógu heldur betur í gegn og ég fann fyrir mikilli þörf fyrir svona smekkjum.Flísfóðrið gerir gæfumuninn Smekkirnir eru fóðraðir með flísi að aftan en koma í ótal efnisútfærslum svo allir ættu að geta fundið smekk við sitt hæfi. Það var í raun vegna þess hve mikið ég var hvött áfram af þeim sem höfðu fengið smekki hjá mér sem ég lagðist í útrás og kannaði markaðinn hvar ég gæti farið að selja smekkina mína. Fiðrildið tók strax vel í hugmyndina en sú verslun selur bæði notuð föt og ný, auk þess óhrædd við að leyfa nýjum íslenskum hönnuðum að koma vörum sínum á framfæri." Óhætt er að segja að smekkirnir hafi slegið í gegn frá fyrsta degi. ,,Í kjölfarið lagðist ég í frekari rannsóknarvinnu og næsta skref urðu snudduböndin en hugmyndin spratt líka í gegnum dóttur mína sem var stöðugt að missa og týna snuddunni sinni." Snudduböndin eru unnin úr sama efni og smekkirnir og eru því lífleg og litaglöð. ,,Ég sæki efnin mín mest til Danmerkur svo sérhver vara er einstök og erfitt að finna sambærileg efni bæði í útliti og gæðum hér heima. Ég er sjálf rosalega hrifin af skærum litum og litríkum mynstrum, en jafnframt er ég mikið í því að dúlla við hverja vöru fyrir sig með blúndum og slaufum."Hér má sjá hönnun Döbbu.Knúsuklútar fyrir kelirófur Eftir að snudduböndin höfðu bæst við söluna fór bókin að taka á sig mynd en eins og með allt hitt hófst hugmyndavinnan gegnum litlu mína því mér fannst framboðið einhæft og druslulegt, eiginlega bara lélegt. Hugmyndirnar spruttu fram hver af annarri og útkoman knúsuklúturinn sem er það nýjasta í minni línu. Kveikjan að klútnum kviknaði út frá því hvernig börn leita í miðana á öllu, bæði böngsum og öðru dóti. Það gerðu mínar stelpur og börnin í kringum mig svo mér datt í hug að kannski hægt væri að hafa þessa miða samansafnaða í einhverju barnvænu og notalegu sem börn gætu knúsað og leikið sér að. Knúsuklúturinn hefur jafnframt hitt í mark og er bæði sniðugur á rúmstokkinn, bílstólinn eða á leikteppið. Mín reynsla er sú að börn dundi sér ótrúlega mikið við litríkar myndir og pífur sem grípa augað. Knúsuklúturinn er þannig mjúk bók sem hægt er að borða og skoða og hefur reynst minnstu manneskjunum ákaflega vel. „Ég hef líka verið að prófa mig áfram með litlar stuttbuxur sem hafa fengið góðar undirtektir og lífga upp á sokkabuxur og samfellur en eru jafnframt þægilegar og fallegar. Það verður spennandi að sjá hvernig þær þróast en auk þess er ég með fullt af fleiri hugmyndum í vinnslu." Áhugasamir geta fylgst með hönnun Dagbjartar Elsu á facebook síðu hennar http://www.facebook.com/dabbadesign sem og í versluninni Fiðrildinu, Fákafeni 9.
Mest lesið „Pabbi hélt alltaf að þú værir kunta, takk fyrir að sanna það“ Lífið Gengu um rústir ratsjárstöðvar og klifu fáfarnasta fjall Hornstranda Lífið Skvísur landsins skáluðu í miðborginni Lífið Vildi frekar hafa David Hasselhoff uppá vegg en Jón Ólafs Lífið „Hugsa fallega til stelpunnar sem ég var þá“ Tíska og hönnun Hætta með Þarf alltaf að vera grín? af persónulegum ástæðum Lífið Kaupir fjórða húsið við sömu götu Lífið Er hægt að komast yfir framhjáhald? Lífið Kristján Einar leitar sér aðstoðar Lífið Íslenskur Hollywood-leikari selur íbúð í Seljahverfinu Lífið Fleiri fréttir Skvísur landsins skáluðu í miðborginni Vildi frekar hafa David Hasselhoff uppá vegg en Jón Ólafs „Pabbi hélt alltaf að þú værir kunta, takk fyrir að sanna það“ Gengu um rústir ratsjárstöðvar og klifu fáfarnasta fjall Hornstranda Kaupir fjórða húsið við sömu götu Tælenskar salatvefjur í anda Cheesecake Factory Íslenskur Hollywood-leikari selur íbúð í Seljahverfinu Hætta með Þarf alltaf að vera grín? af persónulegum ástæðum Íbúð í Vesturbænum með mikinn karakter Hrósar eiginkonu Bruce Willis fyrir umönnun leikarans Kristján Einar leitar sér aðstoðar Yngsti Íslendingurinn frá upphafi sem safnar skákstigum Nældi sér í einn umdeildan Er hægt að komast yfir framhjáhald? Cardi B sýknuð af kröfu um líkamsárás á öryggisvörð Svona færðu fullnægingu án handa Huggulegustu hommar landsins kaupa heillandi hæð Súrsætir matcha-bitar úr smiðju danska sjarmatröllsins Skein jafn skært og demantshringurinn í Feneyjum Framsóknarprins fékk formannsnafn Sylvía Hall og Viddi Sig trúlofuð Pattra og Birgitta Líf með keppnisskapið og lúkkið upp á tíu „Og Rakel er á lausu!“ Mýtur um fjármál: Hræddur við YOLO-viðhorf Íslendinga Graham Greene er látinn Erfitt að geta ekki rætt meðgönguna við móður sína „Guð og karlmenn elska mig“ Júlíana Sara tekur við af Ásu Ninnu í Bakaríinu Hárprúður Eiður heillar Dúndurgóður hverdsdagsréttur Sjá meira