Lífið

Fyrsta myndin í mörg ár

MYND/TMZ
Golfarinn Tiger Woods og fyrrverandi eiginkona hans Elin Nordegren voru mynduð saman á Flórída á laugardaginn í fyrsta sinn í mörg ár.

Þau sóttu viðburð á vegum íþróttafélags með börnunum sínum tveimur, Sam og Charlie.

Fjör á vellinum.
Slúðursíðan TMZ birtir myndir af parinu en heimildir síðunnar herma að Tiger hafi fyrst mætt á svæðið með krakkana og að Elin hafi slegist í för með þeim klukkutíma síðar.

Tiger og Elin voru gift í sex ár.
Sex ára hjónabandi þeirra lauk árið 2010 eftir að upp komst um raðframhjáhald Tigers. Sem betur fer virðist allt vera í góðu á milli þeirra núna.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.