Lífið

Undir frönskum áhrifum

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Giorgio Armani er einn fremsti hönnuður heimsins í dag. Hann gerði það gott á Óskarnum og klæddi þrjár af þeim fimm leikkonum sem tilnefndar voru sem besta leikkona í aðalhlutverki, Naomi Watts, Jessicu Chastain og hina níu ára gömlu Quvenzhane Wallis. Armani sýndi svo haust – og vetrarlínu sína á tískuvikunni í Mílanó í gær og voru frönsku áhrifin allsráðandi. Mínimalísminn var við völd, strákalegar buxur og klæðskerasniðnir jakkar. Giorgio á það til að vísa í kvikmyndir í línum sínum, en að þessu sinni minntu fötin mikið á kvikmyndina um Amélie sem lék franska leikkonan Audrey Tautou lék svo eftirminnilega.

Giorgio Armani.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.